Lift & peel ávaxtasýru meðferð
18.900 kr.
Djúphreinsandi andlitsmeðferð sem gefur húðinni heilbrigt og fallegt útlit, hjálpar henni að endurnýja sig og gefur aukinn ljóma. Húðin er djúphreinsuð, óhreinindi fjarlægð og sjáanlegar húðholur minnka. Meðferðin kemur jafnvægi á fituframleiðslu með virkum náttúrulegum innihaldsefnum. Húðin verður hreinni, mýkri og fær mattara yfirbragð. Meðferðin er sérstaklega áhrifarík fyrir feita og óhreina húð en hentar öllum sem vilja góða djúphreinsun. Þessi meðferð hentar einnig vel sem undirbúningur fyrir öflugri meðferðir sem við bjóðum upp á.
Lýsing
Lýsing
Um meðferðina:
- Húðin hreinsuð með hreinsigeli
- Undirbúningsmaski til að fjarlægja dauðar húðfrumur.
- Lift og peel ávaxtasýrur í 10-15 mínútur (fer eftir húð)
- djúphreinsi maski í 10 mínútur
- Að lokum er andlitið svo nuddað með góðum raka eftir meðferðina
- Meðferðin er 35 mínútur
Umsagnir (0)
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.