Húðþétting og lyfting með Ultrasound Sony hand
Andlitslyfting án skurðaðgerðar með Ultrasound Sony hand.
Ein vinsælasta stjörnumeðferðin í hollywood, meðferð til að yngja upp húðina.
Húðþéttingarmeðferðin (svo kölluð) sem er meðhöndluð með Ultrasound Sony hand, er best lýst sem „mini“ andlitslyftingu án skurðaðgerðar. Meðferðin er meðhöndluð með ávaxtasýrum og sérstöku húðþéttingar serumi sem er þrýst niður í ysta lag húðar og myndar þar af leiðandi þessa þéttingu húðar.
Ultrasound Sony hand meðferðin örvar endurnýjun húðarinnar, hún fær aukinn teygjanleika og verður unglegri. Meðferðin hefur einnig nuddáhrif sem myndast djúpt niðri í húðinni og í vöðvunum vegna örtitringa og örfar því vöðvana og myndar þessa andlitslyftingu.
Meðferðin gengur út á það að hljóðbylgjur fara niður í dýpstu lög húðarinnar og hita vefinn. Við það örvast endurnýjun og kollagen framleiðsla húðarinnar. Húðin þéttist töluvert og þar af leiðandi fæst sjáanleg lyfting á því svæði sem meðhöndlað er. Þess vegna er þessi meðferð oft kölluð andlitslyfting án skurðaðgerðar.
Aukin kollagenframleiðsla hefst strax eftir meðferðina og er sjáanlegur árangur strax eftir fyrstu meðferð
Hver meðferð tekur um 45 mínútur,
Um meðferðina: