Microblade tattoo

Microblade tattoo er varanleg förðun á augabrúnir og er gömul japönsk tækni sem hefur verið notuð í marga áratugi. Notað er handtól með örfínum nálum til að gera mjóar línur sem líkjast má hári. Farið er grynnra í húðina en venjulegt tattoo. Farið er milli háranna til að þykkja og móta augabrúnina. Ef lítið er af hárum fyrir þá eru gerðar fleiri línur til að byggja upp augabrúnina og gera hana sem náttúrulegasta.

Er microblade tattoo fyrir alla?
Já. Meðferðin er fyrir bæði kynin, konur og karla sem hafa náð 18 ára aldri. Hentar sérstaklega vel fyrir fólk sem hefur lítið af hárum í augabrúnunum, eða engin hár. Einnig hentug þeim sem vilja fá mótun á augabrúnirnar, stunda mikið af íþróttum, sjá illa eða vilja spara sér 10-15 mínútur á dag að teikna þær upp og móta. Ef þú ert með feita húð á meðferðasvæðinu þá er mælt með að nota tattoo vél frekar en microblade tækni til að gera augabrúnir.

Microblade tattoo

Hvernig fer meðferðin fram?

  • Þegar þú kemur fyllir þú út spurningalista um heilsu þína.
  • Teknar myndir, teikna upp og móta augabrúnirnar í samráði við þig.
  • Þú ert ekki deyfð/ur í fyrstu lotu og finnur lítið sem ekkert til.
  • Eftir fyrstu umferðina þá ertu deyfð/ur og finnur ekkert til eftir það.
  • Að meðferð lokinni færðu upplýsingar um eftirmeðferð og krem með þér heim.
  • Eftir 4-6 vikur kemur þú aftur í lagfæringu.

 

Afherju þarf að koma tvisvar fyrst?
Ef þú ert að koma í fyrsta skiptið í microblade tattoo þá þarftu að koma tvisvar með stuttu millibili 4-6 vikum seinna og er endurkoman innifalin (oftast kölluð sem leiðrétting). Microblade tattoo verður ekki fullkomið fyrr en eftir endurkomuna. Taka skal fram að liturinn verður mjög dökkur fyrstu dagana, sem gerist þegar líkamsvessi, blóð og tattoo litur oxast við súrefnið og harðnar. Oftast myndast hrúður sem ekki má kroppa af, við viljum að það flagni af sjálfu sér. Í gróandaferlinu lýsist tattooið um 30-40% þar sem farið er mjög grunnt í efsta lag húðar.

 

Hvað dugir microblade tattoo lengi?
Mælt er með að koma aftur 12 til 18 mánuðum seinna til að skerpa á litnum og viðhalda tattooinu fersku og fallegu.

 

Þarf ég að gera eitthvað áður en ég kem?

  • Mælt með að plokka/vaxa brúnir lágmark 3 dögum áður.
  • Best að hafa hárin í sínum náttúrlega lit nema þú viljir hafa þær dökkar.
  • Koma óförðuð og með hreint hár.

 Hvað tekur meðferðin langan tíma?
Í fyrstu komu gef ég mér 2½ – 3 klst í það heila. Viðtal, myndataka, teikning á brúnir, meðferðin og upplýsingar um heimameðferðina

Endurkoma 4-6 vikum seinna er 1½ klst, fer eftir hversu mikið af lit er í húðinni.

 Hver er eftirmeðferðin?

  • Þú færð nákvæmlegar leiðbeiningar um heimameðferð og krem.
  • Ekki má fara í ljós, sólbað, sund, heitan pott, gufu, bað eða ræktina fyrstu 10 Það má fara í sturtu en passa að bleyta ekki tattoo-ið.

Hvaða tattoo litir eru notaðir?
Eingöngu eru notaðir litir frá Nouveau Contour sem eru 100% náttúrulegir og án allra skaðlegra efna. Litirnir halda sér en dofna með tímanum, hversu fljótt þeir dofna er eftir húðgerð, frumubreytingum, meðferð á húð ef þú notar ýmis krem og sýrur, ert mikið í sól, útveru, sundi og æfir mikið.

Ef það eru einhverjar aðrar spurningar ekki hika við að senda mér póst eða hringja.

Hafa samband

Vinsamlega sendu okkur skilaboð hér

Ekki læsilegt? Skipta um texta. captcha txt
0