Húðslípun – demantshúðslípun

Húðslípun er mjög áhrifarík og örugg húðmeðferð sem hreinsar vel óhreinindi úr ysta lagi húðar og gerir áferð húðar fallegri og sléttari.

 

Húðslípun

  • Gerir áferð húðar fallegri
  • Vinnur burt unglingabólur
  • Dregur úr línum og hrukkum
  • Hreinsar óhreina húð
  • Þéttir opnar svitaholur

Húðslípun er mjög áhrifarík og örugg húðmeðferð.

Um er að ræða heildræna húðmeðferð án skurðaðgerðar. Meðferðin er framkvæmd með þeim hætti að ysta lag húðarinnar er fjarlægt með notkun örsmárra kristalla og demanta.

Húðslípun – demantshúðslípun

Meðferðin fjarlægir dauðar húðfrumur af ysta lagi húðar og örvar vöxt frumna og bandvefs í undirlagi húðarinnar.
Strax eftir fyrstu meðferð fær húðin aukinn ljóma þar sem hún verður frísklegri, unglegri, og þéttari, auk þess sem svitaholur minnka. Áferð húðarinnar verður fallegri, mýkri og sléttari.
Það sem gerir Húðslípun einstaka er tæknin sem tryggir örugga og árangursríka hreinsun á ysta lagi húðarinnar. Meðferðin fjarlægir stíflur, óhreinindi og húðfitu sem er föst í svitaholum og fínum línum. Eftir meðferð verður húðin móttækilegri fyrir virkum efnum í kremum sem borin eru á andlitið. Þessi einstaka húðmeðferð lætur húð þína líta betur út og endurheimta ljóma sinn.

Meðferðin bætir áferð og vinnur gegn öldrun húðarinnar. 
Eldri húð sem farin er að þynnast þéttist og styrkist. Á meðan á meðferð stendur verða stöðugar framfarir og er sjáanlegur munur eftir hvert skipti. Húðslípun er árangursrík meðferð sem hentar öllum aldri og húðtegundum.

Fjöldi meðferða: Til að fríska upp á þreytta húð næst góður árangur eftir eitt skipti. Til að vinna á óhreinindum eða öðrum vandamálum er hins vegar mælt með að teknar séu þrjár til sex meðferðir með viku til tveggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Fyrir mjög óhreina og/eða örótta húð er mælt með að taka að lágmarki sex meðferðir með tveggja vikna millibili til að ná sem bestum árangri. Alltaf þarf að líða a.m.k. ein vika á milli meðferða.

 

Eftir meðferð þarf að

  • Bera græðandi krem á svæðið tvisvar á dag í eina viku.
  • Forðast sól og ljósabekki í a.m.k. þrjá daga.
  • Forðast sund í a.m.k. sólarhring.
  • Sleppa líkamsrækt samdægurs.
  • Nota a.m.k. SPF 30 sólarvörn í allavega eina viku.

Hafa samband

Vinsamlega sendu okkur skilaboð hér

Ekki læsilegt? Skipta um texta. captcha txt
0